Jörðin
Listasafn ASÍ árið 2000

Heimurinn okkar eftir Halldór B. Runólfsson
BORGHILDUR Óskarsdóttir nýtir bæði stóra salinn í Listasafni ASÍ og gryfjuna - hornherbergið í suðausturhluta hússins - undir eitt stórt verk sem þekur stóran hluta gólfsins, auk þess sem hún sýnir kassana utan af verkinu. Um er að ræða málverk af jörðinni eins og hún lítur út ef hún væri hlutuð í tvennt eins og glóaldin. Þannig er málverkið hringmyndað og gefur til kynna hlutföll hinna ýmsu laga í iðrum plánetunnar. Eflaust verður ýmsum brugðið við að sjá hvílíkt skæni ysta lagið er; skorpan sem við byggjum. Það er varla að undra þótt stundum gangi eitthvað á líkt því sem reið yfir Suðurland í júní.
IMMENSITIES eftir Aðalstein Ingólfsson – english
"Hver er þessi hnöttur Jörð?" Inga María Leifsdóttir
Birtist laugardaginn 26. ágúst, 2000 - Menningarblað/Lesbók






